Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sports Illustrated 
Markvörður Espanyol réðst á stuðningsmann
Carlos Kameni markvörður Espanyol brást illa við ummælum stuðningsmanns sem bað hann vinsamlegast um að endurnýja ekki samning sinn hjá félaginu eftir að hann gerði mistök gegn Racing Santader sem gáfu þeim síðarnefndu mark.

Atvikið sem stuðningsmennirnir áttu við var þegar Ivan Marcano leikmaður Racing nýtti sér slæm mistök Kameni til að skora fyrsta mark þeirra í 3-0 sigri í spænsku úrvalsdeildinni fyrir dálitlu síðan.

Þessi landsliðsmarkvörður Kamerún yfirgaf æfingavöll félagsins á mánudag eftir að hann heyrði þessi ummæli og nálgaðist hann tvo stuðningsmenn sem stóðu á hliðarlínunni. Greip hann í kragann á jakka annars þeirra og sagði: Ég er atvinnumaður. Þú átt að bera virðingu fyrir vinnu minni, sýndu mér virðingu!

Luis Garcia og Sergio Sanchez, samherjar hans hjá Espanyol, hlupu að honum til þess að fjarlægja mennina í sundur.

Eftir atvikið rauk Kameni inn í búningsklefana og sást hann síðar um daginn gefa eiginhandaráritanir fyrir utan æfingarsvæði félagsins á Sant Adria del Besos.
Slapp
banner
banner
banner