Heimild: Sky
Gamla brýnið Dean Windass er ánægður hjá Hull City og leitast hann ekki við að yfirgefa félagið samkvæmt umboðsmanni hans.
Þessi 39 ára framherji hefur einungis komið við sögu í fimm leikjum Hull í úrvalsdeildinni á tímabilinu og valdi Phil Brown hann ekki í hópinn í tveimur síðustu leikjum.
Vangaveltur voru um að Windass hefði lent í einhverjum erjum við stjórann og viðurkennir umboðsmaður hans, Nicola Benn, að smávægilegt atvik hafi komið upp á. Hann segir þó að smá erjur væru ekki nóg til þess að fá Windass til að yfirgefa Hull þrátt fyrir áhuga frá öðrum liðum.
„Það var eitthvað smáatriði, en ekki nóg til þess að hann myndi vilja fara,“ sagði Benn þegar hann var spurður út í erjurnar.
„Nokkur lið hafa sýnt áhuga en í augnablikinu hefur Hull enn þörf fyrir Windass og hann er mikilvægur hluti liðsins.“




