Heimild: Soccernet
Wayne Bridge, sem gekk nýlega til liðs við Manchester City frá Chelsea fyrir 10 milljónir punda, segir að hann eigi enn eftir að sýna sínar bestu hliðar og vonast hann til að gera það hjá Manchester City.
Hann gengur til liðs við City á erfiðum tíma, liðið féll nýlega úr FA bikarnum gegn Nottingham Forest og eru þeir einungis tveimur stigum frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni.
Bridge telur þó að hann geti náð góðum árangri í Manchesterborg.
„Fyrst og fremst vil ég sýna stuðningsmönnunum og öllum í kring að ég geti staðið mig vel hjá Manchester City,“ sagði hann á opinberri heimasíðu félagsins.
„Ég vil meina að ég sé núna að komast á hátind ferilsins en ég legg mig hvort eð er alltaf fram við að vera í formi og ég er með góðan vinstri fót, svo ég mun koma til með að sýna það á vellinum.“


