Heimild: Soccernet
Klaas Jan Huntelaar var himinlifandi með sinn fyrsta leik hjá Real Madrid en viðurkenndi þó að hann hafi verið vonsvikinn með að hafa ekki tekist að skora mark
Hollendingurinn spilaði í 55 mínútur áður en honum var skipt út af í 1-0 sigri Madridinga á Villareal síðastliðinn sunnudag. Þessi fyrrum framherji Ajax hafði ekki spilað í tvo mánuði vegna ökklameiðsla og munaði minnstu að hann hefði átt óskabyrjun, en Diego Lopez markvörður Villareal kom í veg fyrir það með glæsilegri markvörslu.
Þrátt fyrir það var Huntelaar meira en sáttur með sinn fyrsta leik í treyju spænsku meistaranna.
„Ég er mjög ánægður með að við höfum fengið þrjú stig, þetta var frábært kvöld,“ sagði hann.
„Ég er ekki þreyttur. Við fengum þrjú stig í leik sem var mjög mikilvægur fyrir okkur.“
„Andrúmsloftið var frábært og mikið líf í stuðningsmönnunum. Ég var mun betri í fyrri hálfleik en þeim síðari.“
„Ég var nálægt því að skora mitt fyrsta mark og mér fannst það mjög spennandi tilhugsun, en ég vil samt þakka stuðningsmönnunum kærlega fyrir allan stuðninginn.“
„Ég fékk nokkur góð tækifæri og markvörðurinn varði glæsilega, en ég hefði átt að skora. Það hefði verið æðislegt að skora í mínum fyrsta leik.“



