Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 06:00
Alexander Freyr Tamimi
Spánn: Barcelona heimsækir Atletico Madrid í bikarnum
Barcelona og Atletico Madrid mætast í spænska bikarnum í kvöld
Barcelona og Atletico Madrid mætast í spænska bikarnum í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Einn leikur fer fram í spænska bikarnum í kvöld þegar Atlético Madrid fær Barcelona í heimsókn á Vicente Calderon leikvanginn. Leikurinn verður sýndur beint á Stöð 2 Sport 3 klukkan 18.55.

Búast má við hörkuleik, enda er Barcelona topplið spænsku úrvalsdeildarinnar um þessar mundir og er Atletico jafnframt talið eitt af sterkari liðum deildarinnar.

Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í hópi Barcelona í leiknum en hann spilaði allan leikinn í 3-1 sigri á Mallorca um helgina.

Leikmannahópur Barcelona gegn Atletico:
Pinto, Jorquera, Piqué, Iniesta, Henry, Cáceres, Sylvinho, Bojan, Messi, Alves, Abidal, Keita, Touré Yaya, Busquets, Víctor Sánchez and Pedro.
Slapp
banner
banner