Heimild: Soccernet
Carlos Tevez framherji Manchester United segir stjórann Sir Alex Ferguson fara með rangt mál varðandi samningaviðræður hans við félagið.
Þessi 24 ára Argentínumaður sagðist vera ósáttur með þann orðróm sem væri í gangi um að hann hefði neitað samningsboði frá ensku meisturunum og sagðist hann vilja fá framtíð sína á hreint sem fyrst.
„Ég er ósáttur með að hann (Ferguson) hafi sagt að ég hafi neitað samningstilboði því hvorki ég né umboðsmaður minn fengum neitt slíkt,“ sagði Tevez við Rodio del Plata, en samningur hans rennur út í sumar.
„Ég veit ekkert um framtíð mína. United veit að þeir verða að borga ef þeir vilja að ég verði um kyrrt.“
„Ég vil vera hérna áfram en félagið hefur ekki komið með neitt tilboð. Ég hef beðið eftir þeim í eitt og hálft ár.“
Þessi ummæli gefa þeim vangaveltum byr undir báða vængi að Tevez sé hugsanlega á leið til Real Madrid og bætti hann sjálfur við: „Ef ég yfirgef Manchester United, þá vil ég gera það á góðum nótum.“
„Nú standa öll lið jafnfætis gagnvart mér. Ef félag kemur að mér og býður mér fimm ára samning mun ég taka því bara til að geta öðlast hugarró.“
„Ég mun skrifa undir minn síðasta samning og síðan vil ég halda til Boca (Juniors). Það gæti verið eftir fjögur eða fimm ár.“
„Ég vil bara að allir viti að ég hef ekki fengið neitt samningstilboð frá United og ég kann illa við það að þeir séu að ljúga að stuðningsmönnunum, sem sýna mér ást og alúð í hverjum leik.“

