Heimild: Soccernet
Harry Redknapp stjóri Tottenham hefur svo miklar mætur á aðalskotmarki sínu Jermain Defoe að hann viðurkennir að hann myndi ekki selja hann ef hann væri enn við stjórnvölinn hjá Portsmouth.
Redknapp vonast til að geta sannfært sitt gamla félag um að selja sér Defoe, sem hann nældi sér í sjálfur frá Tottenham fyrir rétt rúmlega ári síðan.
„Það er þeirra (Portsmouth) að ákveða hvort að hann sé til sölu eða ekki. Ég hefði ekki selt hann ef ég væri að stýra Portsmouth og Tottenham kæmu og segðust vilja fá hann aftur, ég hefði haldið honum“ sagði Redknapp.
„Stjórnarformaðurinn og Peter Storrie eru að reyna að ná samkomulagi. Ef þeim tekst það ekki munum við bara halda áfram.“





