Fyrri undanúrslitaleikur enska deildarbikarsins fer fram í kvöld þegar Jóhannes Karl Guðjónsson og félagar hans í Burnley sækja úrvalsdeildarlið og núverandi bikarhafa Tottenham Hotspur heim á White Hart Lane. Leikurinn hefst klukkan 19.00 og verður hann sýndur í beinni á Stöð 2 Sport.
Burnley hefur nú þegar lagt Arsenal og Chelsea af velli til að komast svona langt en Tottenham fór framhjá Liverpool og nú síðast Watford.
Leikmenn Burnley vonast til að geta haldið áfram góðu gengi sínu gegn stórliðunum í deildarbikarnum í ár á meðan Tottenham freistast til þess að vera fyrsta liðið til að verja titilinn síðan Nottingham Forest vann bikarinn í annað skiptið í röð árið 1990.
Sigurvegari þessarar viðureignar mætir annað hvort Englandsmeisturum Manchester United eða Derby County í úrslitaleiknum á Wembley en viðureign þessarra tveggja liða fer fram á morgun.




