Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 07:17
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Papa Bouba Diop frá í þrjá mánuði
Portsmouth hefur orðið fyrir miklu áfalli en ljóst er að miðjumaðurinn Papa Bouba Diop verður frá í þrjá mánuði vegna hnémeiðsla.

Þessi öflugi landsliðsmaður Senegal meiddist í leik gegn Arsenal þann 28. desember og nú er ljóst að meiðslin eru alvarleg og mun hann verja meirihluta þess sem eftir er af tímabilinu á hliðarlínunni.

Gary Sadler yfirsjúkraliði hjá félaginu staðfesti að 12 vikna fjarvera frá knattspyrnu væri óumflýjanleg staðreynd fyrir Diop eftir að hann heimsótti sérfræðing.

„Við munum fara með hann (Diop) aftur til sérfræðingsins eftir sex vikur og þá munum við vita aðeins meira um hvernig þetta er,“ sagði Sadler við opinbera heimasíðu félagsins.

„Hann er í spelku og mun fá aðhlynningu til að draga úr bólgunni á hnénu.“
Slapp
banner
banner
banner