Heimild: Sky
Stjórnarformaður Manchester City, Garry Cook, hefur ítrekað að stjórn félagsins hefur algera trú á Mark Hughes stjóra liðsins.
Óvænt 3-0 tap á heimavelli gegn Nottinham Forest í FA bikarnum um helgina hefur einungis hellt olíu á eldinn í vangaveltum um framtíð Hughes hjá City, enda hefur gengi liðsins verið langt undir væntingum.
Væntingarnar sem gerðar voru til liðsins eftir yfirtöku Abu Dhabi United Group voru miklar, og þó svo að þær hafi hugsanlega verið ósanngjarnar er óhætt að segja að flestir stuðningsmenn bjuggust allavega við því að vera ofar en tveimur stigum frá fallsæti þegar nýtt ár gengi í garð.
Hughes hefur þegar lýst því yfir að hann vilji styrkja liðið í janúarglugganum og er Wayne Bridge þegar kominn til liðsins frá Chelsea. Vill stjórinn bæta við fimm nýjum leikmönnum áður en janúarmánuðurinn er á enda og segist Cook vera viss um að Hughes geti snúið genginu á Borgarleikvanginum við.
Hann hefur því bundið enda á þær vangaveltur um að Hughes gæti orðið rekinn á næstu vikum og segir hann stjórn liðsins sýna Walesverjanum fullan stuðning.
„Mark er hluti af þeirri uppbyggingu sem á sér stað í liðinu, allt frá leikmannakaupum og til þess að gera þetta að frábærum vinnustað,“ sagði Cook við The Sun.
„Við eyðum ekki tíma okkar í að sitja og pæla í því hvað gerist ef það fer úrskeiðis.“
„Þegar við höfum lokið okkur af í fyrsta félagsskiptaglugganum og áhrif Hughes fara virkilega að setja sitt mark á liðið, þá munu hlutirnir fara að taka á sig rétta mynd.“
„Áætlanir Mark og sú aðferð sem hann notar til að stýra liðinu munu byggja okkur upp og sjálfstraustið mun koma með því.“
„Við reynum að fá hingað fólk sem vill sjá liðið komast á fremsta stall og stuðningsmennirnir munu verða hæstánægðir því þetta verður fólk sem tileinkar sig félaginu.“
„Mark hefur spilað og þjálfað á hæsta stigi og hann veit hvernig það er að ná árangri. Hann og ég tölum um það að ná árangri og við hugsum ekki um neikvæðu hlutina, heldur hugsum við um hvernig það verður þegar við förum að ná góðum árangri.“


