Blyth Spartans 0 - 1 Blackburn Rovers
0-1 Carlos Villanueva ('58)
0-1 Carlos Villanueva ('58)
Blackburn Rovers lagði utandeildarlið Blyth Spartans 1-0 í þriðju umferð enska bikarsins í kvöld og tryggði sér þar með réttinn til að mæta Sunderland í fjórðu umferðinni síðar í mánuðinum.
Stemningin var mikil á Croft Park heimavelli Blyth Spartans í kvöld enda ekki á hverjum degi sem liðið fær úrvalsdeildarlið í heimsókn.
Blackburn dugði hins vegar eitt mark til að komast áfram en það gerði Carlos Villanueva beint úr aukaspyrnu í síðari hálfleik.
Undir lokin reyndu heimamenn að jafna og Andrew Wright komst meðal annars nálægt því en lokatölurnar urðu 1-0 fyrir Blackburn.



