AZ Alkmaar á toppinum og eru þeir 11 stigum á undan meisturum PSV
Hollenska deildin er nú hálfnuð og mun snúa aftur úr vetrarfríi helgina 17.-18. janúar. Því þykir okkur á Fótbolta.net það vera vel við hæfi að renna örlítið yfir það hvað hefur gerst á fyrri helmingi tímabilsins þarna í Hollandi.
Staðan á toppi deildarinnar er örlítið óvænt en í efsta sætinu situr AZ Alkmaar, fyrrum félag Grétars Rafns Steinssonar, með 41 stig.
Í fyrra var AZ í 11. sæti deildarinnar, sem inniheldur samtals 18 lið, og kemur það því talsvert á óvart að þeir skuli nú sitja í því fyrsta.
Athygli vekur að meistarar síðustu fjögurra ára, PSV Eindhoven, sitja í fjórða sæti deildarinnar og eru þeir heilum 11 stigum frá toppsæti. Það þarf því margt að gerast í Eindhoven til þess að þeir hampi meistaratitlinum í 5. skiptið.
Ajax er ennþá í bullandi titilbaráttu og eru þeir einungis þremur stigum á eftir AZ í öðru sætinu. Það verður þó athyglisvert að sjá hvernig þeir spjara sig eftir að hafa þurft að horfa á eftir markamaskínunni Klaas Jan Huntelaar til Madrid, en Huntelaar var markahæsti leikmaður hollensku deildarinnar í fyrra með 33 mörk og er því augljóslega mikill missir.
FC Twente í þriðja sætinu er svo sannarlega enn í titilbaráttunni en þeir eru með 34 stig, sjö stigum minna heldur en topplið AZ. Þeir eru smám saman að festa sig í sessi sem eitt af toppliðum Hollands eftir að hafa hafnað í 4. sæti deildarinnar í fyrra.
Þó svo að PSV hafi óneitanlega valdið stuðningsmönnum sínum vonbrigðum verður að segjast eins og er að vonbrigði ársins hingað til eru sjálfsagt hjá stórveldinu Feyenoord.
Þeir sitja í 12. sæti deildarinnar með einungis 19 stig eftir 17 leiki og eru þeir einungis stigi á undan nágrönnum sínum í Sparta Rotterdam, sem jafnan er talið vera mun slakara lið.
Í fallsætunum sitja þau Roda JC, De Graafschap og FC Volendam, en þeir síðastnefndu eru í neðsta sæti með 11 stig. Þannig er þó mál með vexti að liðin sem hampa í 16. og 17. sæti munu spila úrslitaleik um það hvort liðið fellur og hvort þeirra verður áfram í deildinni, en De Graafschap bar einmitt sigur úr bítum í slíkum leik á seinasta tímabili. Það er þó ekki nema tveggja stiga munur á De Graafschap í 17. sætinu með 13 stig og Den Haag sem situr í því 14. með 15 stig, svo fallbaráttan verður spennandi á seinni helmingi tímabilsins.
Arnór Smárason og félagar hans í Heerenveen sitja í 6. sæti deildarinnar og eru þeir einungis einu sæti frá umsspilssæti í Meistaradeildinni, en þeir náðu einmitt 5. sæti í fyrra. Fast á hæla þeirra fylgja nágrannarnir og erkifjendurnir í Groningen, en Arnór skoraði einmitt mark í leik þessara tveggja liða fyrir stuttu.
Markahæsti leikmaður deildarinnar eftir fyrstu 17 leikina er Mounir El Hamdaoui, leikmaður toppliðs AZ Alkmaar. Hann hefur skorað 15 mörk á tímabilinu og hefur hann fyrir vikið vakið athygli stórliða víðsvegar um Evrópu. Næst á eftir honum koma þeir Frank Demouge (Willem II) og Marcus Berg (Groningen) með 13 mörk. Markahæsti leikmaður núverandi meistaranna í PSV er hollenski landsliðsmaðurinn Ibrahim Afellay en hann hefur skorað 8 mörk á tímabilinu og er í 8. sæti yfir markahæstu menn.
Stærsti leikur ársins er ávallt leikur Ajax og PSV Eindhoven, enda hefur annað hvort þessara liða unnið hollensku deildina 22 sinnum síðastliðin 24 ár, PSV þó talsvert oftar.
Í fyrri leik liðanna á þessu tímabili, þann 16. nóvember 2008 á Amsterdam Arena, kjöldró Ajax hollensku meistarana og lauk leiknum með 4-1 sigri heimamanna.
Luis Suárez kom þeim þá yfir á 27. mínútu áður en Ibrahim Afelley tókst að jafna metin á þeirri 56.
Þá tók Ajax sig til og skoraði tvö mörk á fjögurra mínútna kafla og voru það þeir Miralem Sulejmani og Erik Pieters sem voru þar að verki. Leonardo innsiglaði svo sigur Ajax á 90. mínútu og voru stuðningsmenn PSV allt annað en ánægðir með útreiðina.
Það sem af er tímabilinu hefur Ajax verið með flestu áhorfendurna að meðaltali, eða 47.150 manns á hverjum leik. Feyenoord kemur í öðru sæti með 42.555 og í þriðja sæti er PSV með 34.333 áhorfendur. Topplið AZ Alkmaar er í 10. sæti listans með einungis 16.374 áhorfendur.
Þess má til gamans geta að Feyenoord er nú með nýjan leikvang í bígerð og mun sá taka 80.000 manns í sæti.
En hvað sem sætafjölda líður, þá mun seinni hluti tímabilsins hefjast innan tveggja vikna og verður forvitnilegt að sjá hvort að AZ Alkmaar nái að vinna deildina og vera þar með annað liðið á 44 árum utan við stórliðin þrjú: PSV, Ajax og Feyenoord, sem vinnur deildina, en það var einmitt AZ sem vann deildina síðast fyrir 27 árum, en síðan þá og langt á undan því hafa það alltaf verið stórliðin þrjú.



