Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 12:33
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Ferguson: Tímasetningin breytir engu
Sir Alex Ferguson stjóri Manchester United segir að leikur liðsins gegn Chelsea næstkomandi sunnudag sé alveg jafn mikilvægur og leikirnir í síðustu umferð hvað varðar titilbaráttuna þó svo að liðin muni mætast fyrr en vanalega.

Ferguson og lærisveinar hans fá Chelsea í heimsókn á Old Trafford og er þessi viðureign liðanna talsvert fyrr heldur en hún hefur verið undanfarin ár.

Frá tímabilinu 2002/03 hefur United mætt Chelsea í einni af síðustu umferðum deildarinnar og hafa þær viðureignir oft haft sitt að segja í titilbaráttunni.

Ferguson segir þó að tímasetningin geri leikinn ekkert minna mikilvægan og segir að það breyti öllu að fara með sigur af hólmi.

„Þetta verður stór leikur. Það er óvenjulegt að hafa hann í janúar því hann er yfirleitt í kringum lok tímabilsins,“ sagði hann.

„Síðastliðin tvö ár höfum við mætt þeim í næsteinustu eða þarseinustu umferð. En það skiptir samt engu máli hvenær þú mætir Chelsea, þetta er alltaf jafn stór leikur.“

„Tímasetningin gerir hann örlítið skrítnari en við stefnum samt auðvitað á sigur. Þeir hafa gert vel á útivelli en ekki mjög vel heima, og það hefur verið áhugavert að fylgjast með því á þessu tímabili.“
Slapp