Heimild: Sky
Ricky Sbragia stjóri Sunderland vill mun frekar bæta lið sitt heldur en að missa leikmenn í félagsskiptaglugganum í janúar.
Bakvörðurinn Pascal Chimbonda og framherjinn El-Hadji Diouf hafa báðir verið orðaðir við brottför frá Leikvangi ljóssins em Sbragia vill fyrir allar mundir hafa lykilmenn sína um kyrrt.
„Við erum með stórt lið, ég held að við séum með eitthvað í kringum 37 atvinnumenn,“ sagði hann. „Með svona stórt lið er oft erfitt að halda öllum ánægðum.“
„En eitt af því sem við viljum ekki gera er að losa okkur við betri leikmenn okkar.“


