Heimild: Aftenbladet
Espen Hoff, nýr leikmaður Stabæk, segist í samtali við Aftenbladet ekki líta á sig sem arftaka Veigars Páls Gunnarssonar hjá liðinu eins og fjölmiðlar í Noregi hafa ýjað að að undanförnu.
,,Það er ekki ljóst hvert hlutverk mitt verður í liðinu nú þegar Veigar er horfinn á braut,” sagði Hoff sem gekk til liðs við Stabæk frá Lyn í haust þegar Veigar var enn á mála hjá liðinu.
Leikstíll Hoffs svipar til Veigars en þrátt fyrir það er honum illa við samanburð við íslenska landsliðsmanninn.
,,Ég held að ég sé ekki hugsaður sem arftaki Veigars. Veigar er Veigar og ég er ég,” sagði Hoff og bætti við að hlutirnir myndu sennilega fara illa hjá honum ef hann ætlaði sér að líkja eftir Veigari.


