Heimild: Sky
Enrique Cerezo forseti Atletico Madrid segir ekkert hæft í þeim orðrómum að Sergio Aguero sé á leið til Barcelona.
Þessi argentínski framherji hefur vakið mikla athygli fyrir frábæra frammistöðu sína með Atletico síðan hann kom til liðsins frá Independiente árið 2006. Orðrómar hafa tengt hann við hugsanlega brottför á Nývang en Cerezo segir það vera algjöran þvætting.
„Aguero mun ekki fara til Barca. Hann stendur sig vel hjá Atletico og hann vill vera hér áfram,“ sagði Cerezo.
Barcelona mætir Atletico í bikarnum í kvöld og gerir Cerezo ekki ráð fyrir því að Katelóníurisarnir muni geta endurtekið 6-1 stórsigurinn í deildinni fyrir jól.
„Við förum ekki í þennan leik með það í huga að hefna okkar fyrir 6-1 tapið á Nývangi. Við viljum bara vinna.“
„Það sem gerðist í þeim leik var slys því það er ekki eðlilegt að skora þrjú mörk á átta mínútum líkt og þeir gerðu.“





