Heimild: Heimasíða HK
Gunnleifur Gunnleifsson markvörður HK var í kvöld útnefndur íþróttamaður Kópavogs 2008, á íþróttahátíð Kópavogs sem haldin var í Salnum. Linda Björk Lárusdóttir frjálsíþróttakona úr Breiðabliki var um leið útnefnd íþróttakona Kópavogs 2008.
Gunnleifur lék mjög vel í marki HK í Landsbankadeildinni í sumar og fékk mjög góða dóma fyrir sína frammistöðu.
Undir lok tímabilsins vann Gunnleifur sér sæti í íslenska landsliðshópnum og stóð hann á milli stanganna gegn Hollandi og Makedóníu í undankeppni HM.
Hann lék einnig með landsliðinu í æfingaleik gegn Möltu í nóvember síðastliðnum.
Gunnleifur hefur undanfarin ár leikið með uppeldisfélagi sínu HK en hann hefur einnig leikið með KR og Keflavík hér á landi.


