Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. janúar 2009 13:07
Magnús Már Einarsson
Daði Már og Halldór Skarphéðinsson til MB1905 (Staðfest)
Halldór (til vinstri) og Daði Már (til hægri).
Halldór (til vinstri) og Daði Már (til hægri).
Mynd: Benedikt Einarsson - Steinar Ægisson
Halldór Skarphéðinsson markvörður BÍ/Bolungarvíkur og Daði Már Steinsson leikmaður Aftureldingar hafa samið við MB1905 í Færeyjum en liðið leikur í næstefstu deild þar í landi.

Halldór varði mark BÍ/Bolungarvíkur þegar að liðið komst upp úr þriðju deildinni í sumar en hann lék alla leiki liðsins. Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur einnig leikið með Hetti hér á landi.

Daði Már, sem er 25 ára gamall sóknar og miðjumaður, hefur leikið með Aftureldingu undanfarin tvö ár en hann lék fimmtán leiki í annarri deildinni síðastliðið sumar. Áður hefur Daði Már leikið með Leikni Fáskrúðsfirði, Huginn og Fram hér á landi.

Báðir leikmennirnir gerðu eins árs samning við MB1905 en þeir munu halda til Færeyja í næsta mánuði.
Slapp
banner