Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 11:48
Alexander Freyr Tamimi
Heimild: Sky 
Kalou: Verðum að komast í gírinn fyrir United leikinn
Kalou er svekktur eftir jafnteflið við Southend
Kalou er svekktur eftir jafnteflið við Southend
Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson
Salomon Kalou leikmaður Chelsea telur að hann og liðsfélagar sínir þurfi að hrista af sér vonbrigðin um helgina í FA bikarnum og einbeita sér að komandi viðureign gegn Manchester United í úrvalsdeildinni.

Kalou veitti Chelsea yfirhöndina gegn Southend á laugardag en þeim tókst þó að jafna metin seint í leiknum og verður hann því endurtekinn.

Lærisveinar Luiz Felipe Scolari hafa alls ekki verið upp á sitt besta undanfarnar vikur og segir Kalou það vera mikilvægt að ná sér aftur á strik. Chelsea sækja Manchester United heim á Old Trafford á sunnudaginn og segir Kalou að þeir þurfi að minnsta kosti að forðast tap í þeim leik.

„Leikurinn gegn Manchester United er gríðarlega mikilvægur,“ sagði Kalou við The Sun.

„Auðvitað vorum við mjög svekktir eftir leikinn gegn Southend. Þegar maður hefur tækifæri til að rúlla yfir lið og komast í næstu umferð og þarf síðan að sætta sig við jafntefli á heimavelli eru það aldrei góð úrslit.“

„Við erum frekar pirraðir en við verðum bara að gera betur í næsta leik. United leikurinn er mjög mikilvægur.“


Sem stendur eru Englandsmeistarar United fjórum stigum á eftir Chelsea en þeir eiga hins vegar tvo leiki til góða á Lundúnarliðið.

„Ef þeir vinna geta þeir komist fram yfir okkur svo að við verðum að halda einbeitningunni. Ef við leyfum þeim að komast á undan okkur verður alltaf erfitt að ná þeim.“

„Í fyrra vorum við að elta þá allt tímabilið en núna höfum við verið á undan, og við verðum að halda því áfram.“
Slapp
banner