Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. janúar 2009 09:22
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: BBC 
Portsmouth samþykkir tilboð Tottenham í Defoe
Portsmouth hefur samþykkt tilboð Tottenham í framherjann Jermain Defoe.

Harry Redknapp núverandi stjóri Tottenham keypti Defoe upphaflega til Portsmouth frá Tottenham á 12 milljónir punda árið 2007 er hann var stjóri þar.

,,Porstmouth getur staðfest að búið er að semja við Tottenham um kaupverð á Jermain Defoe," sagði í yfirlýsingu Tottenham í morgun.

Talið er að kaupverðið sé 15 milljónir punda og Defoe snýr því væntanlega til baka til félagsins sem hann yfirgaf fyrir innan við ári.

Í skiptunum verður svo farið yfir hversu mikið Portsmouth skuldar Tottenham fyrir kaup á Younes Kaboul og Pedro Mendes.
Slapp
banner
banner