Heimild: BBC
Eins og alla daga þá birtir Fotbolti.net helsta slúðrið sem er að gerast á Englandi á leikmannamarkaðnum og er pakkinn tekinn saman af fréttastofu BBC.
Manchester City hafa gert 24 milljóna punda tilboð í Yaya Toure, miðvallarleikmann Barcelona á Spáni. (The Sun)
Carlos Tevez, framherji Manchester United hefur lýst yfir áhuga sínum á að spila fyrir spænsku meistarana í Real Madrid. (The Sun)
Tevez hefur því hótað að yfirgefa United og hefur gefið Real Madrid og Manchester City grænt ljós á viðræður. (Daily Mirror)
Phil Brown, stjóri Hull City mun klára kaupin á Kamil Zayatte sem er á láni hjá félaginu fyrir 2,5 milljónir punda og bjóða svo fjórar milljónir punda í Michael Chopra, framherja Sunderland. Þá hefur heyrst að hann sé líka á eftir Kevin Kilbane, leikmanni Wigan. (The Sun)
Forráðamenn Chelsea hafa sagt Luiz Felipe Scolari, stjóra liðsins að hann muni ekki fá neinn pening til að eyða í janúar. (Daily Star)
Manchester City ætlar að reyna að fá Roque Santa Cruz framherja Blackburn, Craig Bellamy framherja West Ham og Scott Parker, miðjumann West Ham, Kolo Toure, varnarmann Arsenal og Shay Given markvörð Newcastle. (Daily Star)
Liverpool mun ekki selja Daniel Agger, varnarmann liðsins til AC Milan fyrir 8,5 milljónir punda og ætlar félagið einnig að halda Andrea Dossena, vinstri bakverði liðsins. (Daily Star)
AC Milan eru einnig á eftir Jermaine Pennant, kantmanni Liverpool. (The Sun)
Steve Bruce, stjóri Wigan hefur líkt Antonio Valencia, kantmanni liðsins við portúgalska snillinginn Cristiano Ronaldo, sem leikur með Manchester United og segir að hann muni ekki verða seldur í félagaskiptiglugganum. (Ýmsir)
Valencia sem er metinn á 15 milljónir punda er skotmark hjá Liverpool, Tottenham og Real Madrid. (Ýmsir)
Liverpool og Tottenham munu missa af því að fá Glen Johnson, hægri bakvörð Portsmouth í sínar raðir, en hann muni skrifa undir nýjan samning við félagið á næstu dögum. (Daily Star)
Carlos Kameni, markvörður Espanyol sem er skotmark Fulham er líklega á förum frá spænska félaginu eftir að hafa ráðist á stuðningsmann félagsins og verður seldur fyrir um 3 milljónir punda. (Daily Star)
Arsenal villl fá Niko Kranjcar, leikmann Portsmouth í sínar raðir, þá hefur félagið boðið í Mikael Arteta, leikmann Everton ásamt því að bjóða 5 milljónir punda tilboð í Matthew Upson, varnarmann West Ham og Nicklas Bendtner í skiptum með. (The Sun)
El-Hadji Diouf, framherji Sunderland hefur gefið Sam Allardyce, stjóra Blackburn merki um að bjóða í sig . (The Sun)
Everton og West Ham hefur verið gefin vísbending um að bjóða í Michael Johnson, miðvallarleikmann Manchester City. (The Sun)
Portsmouth vilja fá Christian Obodo, leikmann Udinese sem er metinn á 5 milljónir punda til að fylla í skarð Lassana Diarra, sem fór til Real Madrid á dögunum. (The Sun)
Portsmouth og West Ham eru þá í baráttunni um að fá norska táninginn Stefan Strandberg sem er 18 ára gamall fyrir um 300 þúsund pund. (The Sun)
Sunderland og Wigan eru að eltast Craig Noone, kantmann Plymouth Argyle en hann er metinn á 800 þúsund pund. (The Sun)
Leon Andreasen, miðjumaður Fulham er sagður ætla yfirgefa klúbbinn og snúa aftur til Þýskalands þar sem Hannover munu bjóða 2 milljónir punda í leikmanninn. (The Sun)
Stoke City eru líklegir til að fá Quincy Owusu-Abeyie, leikmann Spartak Moskvu og fyrrum leikmann Arsenal að láni með möguleika um að kaupa hann á 2,5 milljónir punda. (The Sun)
Ryan Giggs, vængmaður Manchester United hefur komið liðinu á óvart með vísbendingu um að hann muni leggja skóna á hilluna eftir tímabilið. (The Sun)
Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United segir a Liverpool hafi ekki það sem þurfi til að vinna ensku úrvalsdeildina. (The Sun)
Garry Flitcroft, fyrrum fyrirliði Blackburn Rovers er líklegur til að taka við þjálfarastöðu hjá enska fyrstu deildarliðinu Blackpool. (The Sun)
Áhorfendur voru hissa þegar öryggisverðir settu upp skilti á leik Southampton og Manchester United í FA bikarnum um helgina sem var að vara fólki við fljúgandi fótboltum. ,,Ef við teljum færin sem við höfum fengið á þessu tímabili, þá er ekki mjög líklegt að fólk fái bolta í sig frá okkar leikmönnum," sagði einn stuðningsmaður Southampton.


