Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 11:46
Gunnar Gunnarsson
Heimild: Channel4.com 
Ítalía: Alberto Gilardino vill verða markahæsti leikmaður Evrópu
hefur skorað 12 mörk í ítölsku deildinni það sem af er tímabilinu
Alberto Gilardino hefur verið iðinn við kolann í markaskorun hjá Fiorentina í vetur og er markahæsti leikmaður ítölsku deildarinnar ásamt, Marco Di Vaio hjá Bologna og Diego Milito leikmanni Genoa.

Gilardino hafði ekki verið í náðinni á hjá AC Milan og átt erfitt með að vinna sér sæti í byrjunarliðinu en hefur fundið fjölina sína á nýjan leik og fengið aukið sjálfstraust í fjólubláa búningi Fiorentina liðsins.

Hinn 26 ára gamli Gilardino viðurkennir að hann gerir sér jafnvel vonir um að ná að vinna hinn eftirsótta gullskó Evrópu sem markhæsti leikmaður álfunnar.

,,Ég hef skorað 17 mörk til þessa á leiktíðinni og það er nokkuð mikið," sagði Gilardino sem var í sigurliði Ítala sem urðu Heimsmeistarar árið 2006 í Þýskalandi.

,,Markmið mitt er að hjálpa liðinu, en ég verð að viðurkenna að ég hugsa eilítið um gullskóinn líka. Ég er mjög sáttur með frammistöðu mína hjá Fiorentina þessa fyrstu sex mánuði," bætti Gilardino við.

Gilardino yrði annar leikmaður Fiorentina á skömmum tíma til að vinna þessi eftirsóttu verðlaun en Luca Toni varð markakóngur Evrópu árið 2006 þegar hann skoraði 31 mark í Serie A deildinni.

Francesco Totti fylgdi í fótspor Toni árið eftir þegar hann skoraði 26 mörk fyrir Roma og Gilardino er sannfærður að hann geti orðið þriðji ítalski leikmaðurinn til að hreppa hnossið á aðeins fjórum árum.

,,Ég vissi að þetta yrði strembið tímabil, sérstaklega í ljósi þess að ég spilaði varla leik í sex mánuði fyrir Milan. En ég vil samt sem áður ekki tala um að ég sé endurfæddur," sagði Gilardino að lokum.
Slapp
banner
banner