Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 12:02
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sky 
West Ham hafnar tilboði Aston Villa í Matthew Upson
West Ham hefur hafnað tilboði Aston Villa í varnarmanninn Matthew Upson samkvæmt heimildum Sky.

Talið er að Aston Villa hafi boðið um það bil ellefu milljónir punda tilboð í hinn 29 ára gamla Upson en því tilboði var hafnað. Líklegt þykir að West Ham vilji fá allt að því sextán milljónir punda fyrir leikmanninn.

Að undanförnu hefur Upson einnig verið orðaður við Manchester City, Tottenham, fyrrum félag sitt Arsenal sem og Aston Villa.

Sögusagnir hafa verið um að West Ham þurfi að selja leikmenn en þrátt fyrir það hefur félagið enn sem komið er ekki leyft Craig Bellamy, Parker og nú Upson að fara þrátt fyrir áhuga annarra félaga.
Slapp
banner
banner