Heimild: BBC
Cardiff City mun ekki flytja leik sinn gegn Arsenal í fjórðu umferð enska bikarsins, FA Cup, yfir á Þúsaldarvöllinn í Cardiff. Leikurinn fer því fram á heimavelli liðsins, Ninian Park en reglur enska knattspyrnusambandsins kveða á um að ekki megi flytja leikinn nema leikvangurinn sé ekki leikhæfur af öryggis eða velferðarástæðum.
Cardiff hefði getað grætt á að flytja leikinn því Þúsaldarvöllurinn tekur 74 þúsund áhorfendur en Ninian Park 52 þúsundum færri áhorfendur.
,,Reglur FA Cup leyfa aðeins breytingu á leikvangi ef heimavöllur liðsins er óleikhæfur vegna velferðar- eða öryggisástæðna," sagði talsmaður enska knattspyrnusambandsins við BBC Sport í dag.
Leikur liðanna fer fram 24. eða 25. janúar og Cardiff sendi frá sér yfirlýsingu í dag þar sem sagði að þeir myndu ekki flytja leikinn.
,,Ninian Park er okkar andlegur heimavöllur okkar og allir heimaleikir fara fram á þeim velli," sagði í yfirlýsingu Cardiff en félagið stefnir á að flytja á nýjan leikvang á næstu leiktíð.





