Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 14:12
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Sporting Life 
Adriano verður áfram hjá Inter
Jose Mourinho knattspyrnustjóri Inter Milan er ákveðinn í að halda Brasilíumanninum Adriano áfram í herbúðum félagsins en vangaveltur hafa verið uppi að framherjinn yrði látinn fara vegna agaleysis.

,,Ég hef trú á að hann verði áfram. Ég hef alltaf sagt að ég vildi að í lok leiktíðarinnar væri ég með sama leikmannahóp og ég hóf tímabilið á," sagði Mourinho í dag.

,,Adriano vinnur vel og ég tel að hann gæti spilað í einum af þremur fyrstu leikjum okkar á árinu."

Adriano hefur aðeins leikið sjö leiki með Inter í ítölsku deildinni á tíambilinu en hann hefur nú náð sér að fullu af meiðslum sem hann varð fyrir í desember.

Gilmar Rinaldi umboðsmaður hans sagði í dag að ekkert væri til í að Chelsea væri að reyna að ná í hann. ,,Það hefur enginn frá Chelsea haft samband við okkur. Ef þeir hafa ekki samband þá eru þetta þarflausar vangveltur."

,,Adriano vill vera áfram í eitt og hálft ár til viðbótar hjá Inter til að ljúka við samning sinn. Adriano er ánægður, rólegur og æfir með liðinu."

Slapp
banner
banner