Heimild: BBC
Kuldinn á Englandi heldur áfram að trufla knattspyrnuiðkun í landinu og nú í dag er búið að fresta öllum nema einum leikjum kvöldsins. Það er leikur Tottenham gegn Burnley sem mun fara fram á White Hart Lane í Lundúnum en eina ástæða þess er að völlurinn er upphitaður.
Því verður ekkert af því að Guðjón Þórðarson stýri sínum fyrsta deildarleik með Crewe Alexandra en liðið átti að mæta Bristol Rovers í ensku 1. deildinni í dag.
Sömu sögu má segja um viðureign Peterborough gegn Stockport og leik MK Dons gegn Cheltenham sem báðir áttu að fara fram í kvöld.
Í 2. deildinni, sem er fjórða efsta deild þar í landi, hefur leik Mansfield gegn Exeter verið frestað eins og leik Burton gegn Torquay sem átti að vera síðasti leikur Nigel Clough við stjórnvölinn eftir tíu ára dvöl þar en hann er talinn vera að taka við Derby County.
Í Skotlandi var svo þriðjudeildar leik Cowdenbeath og Berwich frestað en hann hafði átt að fara fram á laugardag fyrst en var frestað þar til í dag útaf frosnum velli. Ástandið hefur hinsvegar ekki batnað síðan þá og því var tekin ákvörðun um að fresta aftur.





