Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. janúar 2009 15:02
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Setanta 
Henrik Larsson fer ekki til Marseille
Svíinn Henrik Larsson mun ekki ganga til liðs við franska félagið Marseille sem hefur átt viðræður við framherjann en ákvað að hætta við í dag. Larsson er einnig í viðræðum um framlengingu við Helsingsborgs í heimalandinu.

Marseille tilkynnti í dag að Larsson hafi tekið sér of mikinn tíma til að taka ákvörðun og vegna þessa hafi félagið ákveðið að hætta viðræðum.

Everton er talið hafa mikinn áhuga á að næla í Larsson sem lék til skamms tíma með Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

,,Félagið hefur ákveðið að hætta í dag viðræðum við Henrik Larsson um að ganga í raðir Marseille," sagði í yfirlýsingu franska félagsins.

,,Félagið virðir það að sænski framherjinn vilji taka sér tíma áður en hann tekur ákvörðun en Marseille getur ekki beðið lengur og mun því skoða aðra möguleika."
Slapp
banner
banner