Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 15:19
Brynjar Ingi Erluson
Heimild: Sporting Life 
Juninho íhugar að hætta þegar samningur hans klárast
Juninho Pernambucano, fyrirliði Lyon í frönsku úrvalsdeildinni íhugar að leggja skónna á hilluna þegar samningur hans klárast hjá félaginu.

Juninho, sem verður 34 ára eftir mánuð hefur spilað fyrir félagið síðan árið 2001, eða þegar Lyon fór á skrið í frönsku deildinni og hafa síðan þá unnið frönsku deildina 7 sinnum í röð.

Hins vegar hefur þessi brasilíski snillingur lýst yfir því að næsta tímabil gæti orðið hans síðasta í knattspyrnunni.

,,Ég veit að ferli mínum fer að ljúka. Mér finnst að það sé kominn tími á að undirbúa framtíð fjölskyldunnar," sagði Juninho við franska blaðið Le Progres.

,,Ungu leikmennirnir geta fengið tækifæri til að spreyta sig án mín."

,,Samningur minn rennur út árið 2010 og ég gæti ekki hugsað mér að framlengja hann. Ég hef mínar hugmyndir og ég vil ekki gefa þær út strax. Klúbburinn veit af þeim og ég vona að þeir skilja það vel,"
sagði Juninho enn fremur.

Áður en hann leggur skóna á hilluna þá vill hann slá met hjá félaginu með því að skora sitt 100 mark, en hann á aðeins sex mörk í það.

,,Mín markmið eru að hjálpa liðinu að sigra leiki og spila vel. Á þessu tímabili hef ég spilað minna, en úrslitin eru til staðar. Ef það heldur áfram þá er ég ánægður," sagði hann.

,,Ég er mjög ánægður með að hafa gengið vel hjá Lyon og þegar ég sá hvernig Steven Gerrard hjá Liverpool var heiðraður fyrir 100 markið hans þá hugsaði ég með mér að það væri gott markmið," sagði hann að lokum.

Juninho hefur lengi vel verið þekktur fyrir sláandi skot sín, en aukaspyrnur hans eru taldnar vera meðal þeirra flottustu í fótboltanum.
Slapp
banner
banner
banner