Heimild: RivalsDM
Grétar Rafn Steinsson hægri bakvörður Bolton verður í leikbanni gegn Arsenal um helgina eftir að hafa fengið fimm gul spjöld á leiktíðinni.
Kevin Nolan fyrirliði Bolton tekur einnig út leikbann auk þess sem Gavin McCann er nýkominn úr banni en Grétar vill ekki að þessir leikmenn breyti leikstíl sínum þrátt fyrir að þeir fái gul spjöld.
,,Ég ætla ekki að breyta leikstíl mínum fyrir neinn. Ég er ekki að fá áminningar fyrir að öskra á dómarann, ég er bara að spila fótbolta og leggja hart að mér. Stundum er ég spjaldaður fyrir það," sagði Grétar Rafn.
,,Ég myndi ekki vilja breyta Kevin (Nolan) heldur, þetta er hans leikur, hann berst með hjartanu eins og við hinir."
,,Við höfum leikmenn eins og Kevin Davies, Fabrice Muamba og Andy O'Brien sem vilja virkilega berjast fyrir liðið og ef að leikstíll okkar kostar gul spjöld þá verður það að vera þannig."



