Heimild: BBC
Nigel Clough knattspyrnustjóri Burton og feta í fótspor föðurs síns þegar hann tekur við stjórn Derby County í lok vikunnar en þetta kom fram á fréttavef BBC í dag en í Clough staðfesti við BBC að viðræður væru í gangi milli félaganna.
,,Það eru allir að tala og hlutum er hent á milli, svo við verðum að sjá síðar í vikunni hvort eitthvað kemur út úr því," sagði hann.
Clough er 42 ára gamall og hefur verið stjóri Burton Albions í tíu ár. Brian Clough var faðir hans en hann stýrði Derby til sigurs í efstu deildinni árið 1972, þremur árum eftir að liðið vann aðra deildina. Hann hætti svo innan við ári eftir það eftir delur við stjórnendur félagsins.
,,Við getum aldrei endurgoldið honum það sem hann hefur gert fyrir félagið," sagði Ben Robinson formaður Burton í dag um Clough þann yngri.
,,Ég er raunsær, við vissum að einhvern tíma myndi eitthvað félag reyna að fá hann og núna hefur það gerst og við erum undir það búnir."



