Heimild: Heimasíða Liverpool
Fernando Torres skoraði annað mark Liverpool í 2-0 sigri á Preston í FA bikarnum um síðustu helgi og var það hans fyrsta mark í keppninni. Hann var mjög ánægður með markið en vildi jafnframt tileinka það liðsfélaga sínum Steven Gerrard sem átti frábæra stoðsendingu.
,,Ég var ánægður með að hafa skorað því að þetta tryggði okkur sigurinn og kom okkur í næstu umferð," sagði Torres.
,,En þó svo að ég hafi skorað markið þá var það Stevie (Steven Gerrard) sem bjó það til og því vil ég tileinka honum þetta mark. Hann er fyrirliðinn okkar og hann er líka frábær náungi sem hefur hjálpað mér mikið síðan ég kom til félagsins."
,,Allir hjá Liverpool standa með honum."




