Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. janúar 2009 16:50
Þórður Már Sigfússon
Notodden gefur Samuelsen upp á bátinn
Mynd: Fótbolti.net - Sölvi Logason
Forráðamenn norska 1. deildarliðsins Notodden hafa gefist upp á því að reyna að fá Keflvíkinginn Símun Samuelsen til liðsins en Suðurnesjaliðið hefur engan áhuga á að láta Færeyinginn fara.

Samuelsen hefur verið efstur á óskalista Notodden í rúmt ár en hann var á láni hjá félaginu frá Keflavíkingum á síðari hluta keppnistímabilsins árið 2006.

,,Við höfum fengið þau skilaboð frá Keflvíkingum að Símun sé ekki til sölu og því verður ekkert úr því að hann komi til okkar. Hann er áhugaverður leikmaður en málið er dautt af okkar hálfu, sagði Kjetil Kvaale, yfirmaður íþróttamála hjá Notodden, í samtali við Fótbolta.net.

Samuelsen skrifaði undir nýjan þriggja ára samning við Keflvíkinga síðastliðið haust.
Slapp
banner
banner
banner