Heimild: Sky
Zenit St Petersburg staðfesti við Sky Sports News í dag að félagið eigi í viðræðum við Arsenal um kaup á Andrei Arshavin. Rússinn hefur verið að leitast eftir því að komast frá félaginu í stóra evrópska deild og nú virðist vera að þokast í þá átt.
Hann vakti mikla athygli með Zenit á síðsta ári og svo með Rússum á EM 2008 og var orðaður við Tottenham, Barcelona og Real Madrid eftir Evrópumótið. Undanfarnar vikur hefur hannhinsvegar verið orðaður við Arsenal.
Talið er að Zenit vilji fá 20 milljónir punda fyrir Arshavin en Arsenal verðmetur leikmanninn mun lægra. Zenit sagði þó við Sky í dag að þeir séu vongóðir um að ná samningi um að selja Arshavin til Arsenal í janúar.
Arsene Wenger stjóri Arsenal ætlar sér að styrja liðið í janúar og þá sérstaklega eftir að ljóst var að fyrirliðinn Cesc Fabregas verður frá keppni í nokkra mánuði vegna hnémeiðsla.


