Guðmundur Steinarsson fyrirliði Keflvíkinga er með samningstilboð í höndunum frá FC Vaduz. Félagið er frá Liechtenstein en leikur í svissnesku úrvalsdeildinni. Vetrarfrí er í deildinni þar til í febrúar en FC Vaduz er sem stendur í níunda og næstneðsta sæti.
FC Vaduz hefur komist að samkomulagi við Keflavík um kaupverð en Guðmundur er þessa stundina staddur ytra þar sem hann skoðar aðstæður.
,,Ég er með samning í höndunum frá þeim og er að kíkja á aðstæður hvort þetta sé eitthvað sem mér líst á hvernig bærinn er og hvernig klúbburinn er," sagði Guðmundur í samtali við Fótbolta.net
,,Það á eftir að lesa endanlega yfir samninginn, skoða þetta og taka ákvörðun. Það eru líka aðrir möguleikar opnir sem maður þarf að skoða."
Guðmundur lék frábærlega með Keflavík í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar en hann var valinn besti leikmaður deildarinnar og var einnig markakóngur með sextán mörk.
Hann vann sér einnig sæti í íslenska landsliðinu og lék tvo leiki með liðinu síðastliðið haust.



