Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. janúar 2009 17:15
Þórður Már Sigfússon
HJK Helsinki spurðist fyrir um Rúrik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Finnska úrvalsdeildarliðið HJK Helsinki spurðist fyrir um Rúrik Gíslason, leikmann danska 1. deildarliðsins Viborg, fyrir stuttu, að því er heimildir Fótbolta.net herma.

Ekkert varð þó úr því að HJK gerði formlegt tilboð í leikmanninn þar sem forráðamönnum félagsins þótti verðmiðinn of hár og ekki er talið líklegt að finnska knattspyrnan heilli Rúrik.

Þá er lítill vilji innan herbúða Viborg að láta Rúrik fara enda hefur hann staðið sig frábærlega á keppnistímabilinu og er á meðal markahæstu leikmanna deildarinnar.

Stjórnarformaður Viborg lét hins vegar hafa eftir sér í síðasta mánuði að Rúrik væri falur berist í hann ásættanlegt tilboð og ekki er loku fyrir það skotið að slíkt tilboð berist á næstu vikum.

Heimildir Fótbolta.net herma að danska úrvalsdeildarlið FC Midtjylland sé að undirbúa tilboð í Rúrik en hann hefur verið undir smásjá ýmissa liða á þessu keppnistímabili, þ.á.m. hollenska stórliðsins Ajax.

HJK Helsinki hafnaði í fjórða sæti finnsku úrvalsdeildarinnar á síðasta keppnistímabili sem telst slakur árangur þar á bæ enda er liðið sigursælasta félagið í Finnlandi frá upphafi.
Slapp
banner
banner