Guðmundur Magnússon, ungur sóknarmaður Fram í Landsbankadeild karla æfði með unglingaliði AGF í Danmörku í desember mánuði.
Guðmundur, sem er 17 ára gamall dvaldi í viku hjá AGF og æfði með U-19 ára liði félagsins í miðjum desember mánuði og þótt standa sig vel, en þó er ekki vitað sem stendur hvort félagið muni hafa samband við hann.
Guðmundur hefur undanfarin tvö ár æft og spilað með meistaraflokki Fram, en hann hefur leikið 15 leiki með félaginu, ásamt því er hann fyrirliði hjá 2.flokki félagins og hefur reynst lykilmaður þar undanfarin ár.
Hann átti að halda utan til Reading á reynslu í október árið 2007, en þurfti að hætta við það vegna hnémeiðsla sem hann hlaut rétt áður en hann hélt út.
Guðmundur lék fjóra leiki með U-17 ára landsliðinu á Norðurlandamótinu í fyrra, og þrjá leiki með U-18 ára liðinu sem tók þátt á móti í Tékklandi í ágústmánuði.



