Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
   þri 06. janúar 2009 18:27
Magnús Már Einarsson
Heimild: Sporting Life 
Dean Windass má yfirgefa Hull City á láni
Dean Windass framherji Hull City hefur fengið leyfi til að yfirgefa félagið á láni.

Þessi 39 ára gamli reynslubolti hefur lítið spilað á tímabilinu en hann fékk í fyrsta skipti tækifæri í byrjunarliðinu í 5-1 tapi gegn Manchester City á dögunum.

Windass var tekinn af leikvelli í hálfleik og hefur síðan þá ekki verið í leikmannahópnum í síðustu tveimur leikjum. Þolinmæði hans var síðan á þrotum þegar hann komst ekki á bekkinn gegn Newcastle um síðustu helgi, í leik þar sem Phil Brown stjóri Hull gerði margar breytingar á liði sínu.

,,Það er ekki rétt að ég hafi verið leystur undan samningi en aðstoðarstjórinn Brian Horton hringdi í mig og sagði að félagið myndi samþykkja lánstilboð. Það segir allt sem þarf að segja um framtíð mína hér," skrifaði Windass á bloggsíðu sinni hjá ITV.

,,Hartlepool hefur komið með tilboð og ég ætla að bíða og sjá hvernig hlutirnir þróast. Ég ætla við fjölskyldu mína um skiptin næstu daga og skoða málið síðan."
Slapp
banner
banner
banner