Heimild: Sky
Micah Richards varnarmaður Manchester City hefur slegið á þær sögusagnir að hann sé of þungur og ekki í formi.
Richards hefur orðið fyrir gagnrýni að undanförnu en Manchester City hefur ekki gengið sem skyldi í vetur, er tveimur stigum frá fallsæti í ensku úrvalsdeildinni og úr leik í bikarnum eftir 3-0 tap gegn Nottingham Forest um helgina.
,,Fólk er að segja að ég líti út fyrir að vera hægari og þyngri en í sannleika sagt þá er það kjaftæði," sagði Richards í tímariti Manchester City.
,,Ef eitthvað er þá hef ég misst kíló og er með minni líkamsfitu en á síðasta ári."
,,Ég hef trú á hæfileikum mínum og tel að stuðningsmenn City viti hvað ég get gert. Þetta er bara spurning um að finna formið sem ég var í á síðustu leiktíð," sagði Richards.



