Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
banner
   þri 06. janúar 2009 19:07
Þórður Már Sigfússon
Heimild: TuttoMercatoWeb 
Reggina segir Emil til sölu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Gabriele Martino, yfirmaður íþróttamála hjá ítalska úrvalsdeildarliðinu Reggina, segir í samtali við fjölmiðla þar í landi að Emil Hallfreðsson sé einn þeirra leikmanna sem félagið vill losna við í janúar.

,,Það eru 28 leikmenn á mála hjá félaginu og þeirri tölu þurfum við að ná niður,“ sagði Martino í samtali við vefmiðilinn TuttoMercatoWeb.

,,Það eru nokkrir leikmenn sem mega fara. (Luca) Vigiani er einn þeirra en okkur hefur ekki enn borist ásættanlegt tilboð í hann.“

,,(Luca) Tognozzi er líka á förum og hafa Bari, Frosinone og Pisa sýnt honum áhuga auk liða utan Ítalíu. Þá eru (Emil) Hallfreðsson og (Pablo) Álvarez einnig til sölu,“ sagði Martino að lokum í samtali við TuttoMercatoWeb.

Emil hefur sjálfur sagst vilja yfirgefa herbúðir Reggina, sem á harðri fallbaráttu, og eru ítölsk lið auk liða frá öðrum löndum sögð vera með augastað á honum.
Slapp
banner