Heimild: Sky
Bolton á í viðræðum við brasilíska kantmanninn Denilson ef marka má heimildir Sky Sports News.
Þessi 31 árs gamli leikmaður yfirgaf Palmeiras í síðustu viku og er án félags sem stendur.
Talið er að Denilson sé kominn til Englands þar sem hann mun æfa með Bolton og ræða við forráðamenn félagsins en Gary Megson hefur lýst því yfir að hann vilji ólmur styrkja leikmannahóp sinn núna í janúar.
Denison var árið 1998 dýrasti leikmaður í heimi þegar að Real Betis boragði Sao Paulo 21,5 milljónir punda fyrir leikmanninn en frægðarsól hans hefur ekki risið jafn hátt síðan þá.



