AC Milan 1-1 Hamburg
1-0 Ronaldinho ('62, víti)
1-1 Collin Benjamin ('67)
Milan vann leikinn 4-3 í vítaspyrnukeppni.
1-0 Ronaldinho ('62, víti)
1-1 Collin Benjamin ('67)
Milan vann leikinn 4-3 í vítaspyrnukeppni.
David Beckham spilaði sinn fyrsta leik fyrir AC Milan í dag þegar að liðið lagði Hamburg frá Þýskalandi í æfingaleik í Dubai.
Beckham er á láni hjá félaginu frá Los Angeles Galaxy, en deildin í Ameríku er ekki í gangi yfir veturinn.
Venjulegum leiktíma lauk með 1-1 jafntefli, en bæði mörk leiksins komu í seinni hálfleiknum.
Ronaldinho kom Milan mönnum yfir úr vítaspyrnu eftir að brotið hafði verið á Massimo Ambrosini. Sú forysta dugði stutt því að Collin Benjamin jafnaði metin fyrir Hamburg stuttu síðar.
Það var farið beint í vítaspyrnukeppni þar sem að Milan unnu 4-3. Emerson klúðraði víti hjá Milan, en Aogo og Alex Silva klúðruðu spyrnum sínum fyrir Hamburg.
Byrjunarlið Milan: Dida; Zambrotta, Maldini, Kaladze, Jankulovski; Beckham, Pirlo, Ambrosini, Ronaldinho; Pato, Shevchenko
Byrjunarlið Hamburg: Hesl, Demel, Reinhardt, Mathijsen, Aogo, Jarolim, Alex Silva, Trochowski, Jansen, Olic, Guerrero





