Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 11. janúar 2009 19:19
Hafliði Breiðfjörð
Heimild: Reuters 
Ferguson: Benítez er bara reiður og truflaður maður
Sir Alex Ferguson.
Sir Alex Ferguson.
Mynd: Getty Images
Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United hefur nú svarað ummælum Rafael Benítez kollega síns hjá Liverpool frá því á föstudag þegar Spánverjinn fór hörðum orðum um Ferguson.

Benítez ásakaði Ferguson þá um að fá sérmeðferð hjá dómurum og aganefnd enska knattspyrnusambandsins og sagði að Skotinn væri að fara á taugum því Liverpool er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. Eftir 3-0 sigur United á Chelsea í dag svaraði Ferguson svo fyrir sig.

,,Jæja, ég held að maður verði að horfa framhjá illkvittninni í þessu," sagði Ferguson við Sky Sports.

,,Vonandi mun hann hugsa um þetta og skilja að það sem hann var að segja er fáránlegt."

,,Ég held að hann sé reiður maður sem truflaðist aðeins og það er það eina sem ég vil segja um það. Sem stendur vil ég bara einbeita mér að því að elta toppliðið sem er Liverpool.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner