Selfyssingar geta fengið leikmenn frá Gautaborg
Knattspyrnudeild Selfoss og IFK Gautaborg frá Svíþjóð hafa gert með sér gagnvirkan samstarfssamning. Samningurinn felur meðal annars í sér að Selfyssingar hafa aðgang að leikmönnum sem ekki komast í endanlegan leikmannahóp hjá Gautaborg.
Håkan Mild knattspyrnustjóri IFK Gautaborg telur þetta mjög áhugaverðan kost fyrir IFK og telur að þetta geti nýst ungum og efnilegum leikmönnum þeirra að takast á við verðugt verkefni. Þetta sé mikil áskorun fyrir efnilega leikmenn frá þeim og gæti komið þeim á næsta stig. Einnig mun IFK Gautaborg senda þjálfara sína til að halda námskeið fyrir unglingaþjálfara og knattspyrnuskóla fyrir yngri leikmenn Selfoss og nágrennis.
Áhugi beggja aðila er að skapa samstarf sem nær yfir öll svið knattspyrnunnar. Bæði knattspyrnulegan og rekstralega þáttinn. Fyrsta skrefið verður tekið núna í apríl, en þá fer sendinefnd á vegum Selfoss í heimsókn til Gautaborgar. Þar fara þjálfarar meistaraflokks, Gunnlaugur Jónsson og Ómar Valdimarsson ásamt fulltrúum meistaraflokksráðs og stjórnarinnar. Einnig munu tveir leikmenn fylgja með í ferðinni.
Það er síðan á teikniborðinu að IFK Gautaborg komi með sendinefnd í heimsókn síðar í sumar og kynni sér unglingastarf og rekstur knattspyrnudeildar Selfoss. Sérstaklega vilja þeir kynna sér innra félagsstarf deildarinnar þ.e.a.s hvernig félagsmenn þjappa sér saman, utan knattspyrnunnar.
IFK Gautaborg mun gefa Selfoss tækifæri á að senda unga efnilega leikmenn í æfingabúðir félagsins sem haldnar eru á haustin ár hvert, en þá fara efnilegustu leikmenn þeirra í stutta æfingaferð. Síðan er einnig opið fyrir að senda unga leikmenn til æfinga með unglingaliðum IFK Gautaborg þegar það hentar báðum aðilum, allt árið um kring. Einnig hafa unglingaþjálfarar Selfoss möguleika á að kynna sér þjálfun hjá Svíunum.
Hugmynd beggja aðila er að skapa sterk vináttutengsl og þróa þetta samstarf á þann hátt að allt sé mögulegt. Sérstaklega hafa báðir aðilar rætt um að auka tengsl við samstarfsfyrirtæki beggja klúbbanna og gefa þeim tækifæri á að mynda tengsl milli landanna. Stjórn knattspyrnudeildar Selfoss hefur jafnframt aðgang að þeim fjölbreyttu leiðum sem IFK Gautaborg á með sýnum samstarfs fyrirtækum.
Jón Pétur Róbertsson 2. flokks þjálfari Selfoss og Håkan Mild hjá IFK Gautaborg hafa unnið samninginn fyrir hönd félagana.
Með IFK Gautaborg leika Íslensku leikmennirnir Ragnar Sigurðsson og Hjálmar Jónsson en þeir hafa orðið bæði Svíþjóðarmeistarar og bikarmeistarar með IFK Gautaborg.



