Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   fim 26. febrúar 2009 15:36
Magnús Már Einarsson
Myndband: Guðjón Baldvinsson hræðir líftóruna úr Eyjólfi Héðins
Mynd: .
Guðjón Baldvinsson framherji GAIS hræddi liðsfélaga sinn Eyjólf Héðinsson á dögunum þegar að sænska félagið var í æfingabúðum í Los Angeles.

Guðjón setti á sig grímu og ákvað að hrekkja Eyjólf sem var herbergisfélagi hans í ferðinni en myndband af atvikinu má sjá neðar í þessari frétt.

Hrekkurinn tókst vel en Eyjólfi brá mikið enda bjóst hann ekki við að sjá mann með grímu þegar hann var í sturtu inni á hótelherbergi.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Guðjón hrekkir liðsfélaga sína því hann gerði það einnig í U21 árs landsliðinu fyrir tveimur árum.

Þá varð Eyjólfur einmitt einnig fyrir barðinu á "grímumanninum" en Guðjón hræddi einnig Rúrik Gíslason og Bjarna Hólm Aðalsteinsson.

Myndband af hrekkjum Guðjóns í U21 árs landsliðinu (Frá 2007)


Slapp
banner
banner
banner