Þann 18. apríl síðastliðinn fór fram hið árlega Drottningamót ÍR og OLÍS. Að þessu sinni mættu 16 lið til keppni og hefur fjöldinn aldrei verið meiri. Við hjá ÍR erum þakklát fyrir þessa miklu þátttöku og það er bara skemmtilegra en orð fá lýst að fylgjast með 160 konum leika knattspyrnu af hjartans lyst og ánægju.
Dagurinn hófst með því að mótshaldarar buðu öllum leikmönnum til morgunverðarhlaðborðs enda nauðsynlegt að hlaða kroppinn orku fyrir átök dagsins.
Að morgunverði loknum var mótssetning um klukkan 13:00 og hófst þá knattspyrnugleðin á gervigrasinu og stóðu leikar til klukkan 18.
Keppnin fór mjög vel fram, enda var það ljóst að þarna mættu konur til að eiga góðan dag í góðum félagsskap við leik og keppni, og já það vantaði ekkert upp á keppnisskapið heldur. Fyrirkomulagið var hið sama og undanfarin ár, annars vegar er keppt í aðalkeppni þar sem Drottningaliðin mætast en þar spila leikmenn 25 ára og eldri. Hins vegar er B-keppni Prinsessuliða sem ekki ná að fylla liðið sitt drottningum 25 ára og eldri og spila því með einhverja yngri leikmenn.
Eftir skemmtilega riðlakeppni fór svo að úrslitaleikurinn var háður milli Vals og ÍA og enduðu leikar með því að sprækar ÍA drottningar fóru með sigur af hólmi. Líklegast hafa ÍA stelpurnar mætt sérstaklega einbeittar til leiks því þær léku líka til úrslita í fyrra en urðu þá að sjá eftir bikarnum í hendur KR. Þetta eru sannar íþróttakonur þarna á Skaganum, til hamingu ÍA.
Að leikslokum var haldið inn í ÍR heimilið þar sem fram fór verðlaunaafhending, og keppendum var boðið upp á grillaðar pylsur og meðlæti. Um kvöldið hittust drottningar og prinsessur í ÍR heimilinu í góðum gír og rifjuðu upp ævintýri og tilburði dagsins.
Við hjá ÍR erum mjög ánægð með að sjá hvað það eru margar konur sem eru að stunda knattspyrnu sér til gamans og teljum okkur heiðruð með nærveru þeirra á þessu móti.
Þarna voru konur sem eiga glæsilegan feril að baki í íþróttinni og einnig konur sem jafnvel eru að byrja sinn knattspyrnuferil þrátt fyrir að 25 ára aldri sé náð.
Við erum ekki ein um að vera ánægð með knattspyrnukonurnar því Drottningamót ÍR og OLÍS hlaut sérstaka viðurkenningu frá UEFA og KSÍ sem besti viðburður eldri leikmanna árið 2008.



