Leikdagur með Stjörnunni í máli og myndum
Stjarnan hefur byrjað frábærlega í Pepsi-deild karla en liðið situr á toppnum eftir þrjár umferðir er liðið á toppnum með markatöluna 12-1.
Stjarnan sigraði ÍBV örugglega 3-0 á Stjörnuvelli í gær. Fótbolti.net fékk að fylgjast með undirbúningi liðsins fyrir leikinn sem og fagnaðarlátunum að leik loknum.
Morgunæfing: Leikmenn Stjörnunnar mættu klukkan 10:00 á létta æfingu. Yngri flokka mót var í gangi í Garðabænum og því skelltu Stjörnumenn sér á sparkvöll.
Hvernig er stemningin? Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari HK var staddur á yngri flokka mótinu og kíkti við á æfingunni. Hér spjallar hann við Kristinn Inga Lárusson aðstoðarþjálfar Stjörnunnar.
Léttur reitur: Æfingin var stutt og byggðist á léttum boltaæfingum og reitarbolta. ,,Ég hef gert þetta stundum í gegnum tíðina og við gerðum þetta fyrir leikinn á móti Grindavík. Við vorum í fríi í gær og leikurinn er ekki fyrr en 8 í kvöld þannig að það er svolítið löng bið eftir leiknum en þetta styttir hana aðeins," sagði Bjarni Jóhannsson um morgunæfinguna.
Ekkert gefins í sektarsjóðnum: Steinþór Freyr Þorsteinsson og Bjarki Páll Eysteinsson stofnuðu á dögunum sektarsjóð en leikmenn eru meðal annars sektaðir fyrir ljósmyndir í dagblöðum. ,,Við vorum bara að byrja þetta en Balli (Baldvin Sturluson) fékk fjóra klobba á fyrstu æfingunni, ég er kominn með svolítið mikið af sektum og svo komu Laxdal-bræðurnir báðir seint í leik og það er dýrt," sagði Steinþór.
Morgunmatur: Eftir æfinguna halda menn í morgunmat sem að Bernhard Laxdal og fleiri góðir menn hafa útbúið.
Steinþór í Cheeriosinu: Steinþór Freyr var einn af fáum sem fékk sér Cheerios og rúsínur.
Brauðið best: Halldór Orri Björnsson og Bjarni Þórður Halldórsson fengu sér brauðsneiðar.
Töflufundur: Eftir morgunmatinn var farið á töflufund þar sem Bjarni kortlagði Eyjaliðið og tilkynnti einnig byrjunarliðið fyrir kvöldið.
Sigurvegarinn: Mottó dagsins var skrifað uppi á töflu.
Þorvaldur fór létt með Hafstein: Nokkrir leikmenn gripu í fótboltaspil áður en þeir héldu heim á leið. Þorvaldur Árnason sigraði Hafstein Helgason örugglega. ,,Ég er mjög lélegur en ég var heppinn núna. Ég tók Haffa, hann á svona spil heima en er frekar slakur," sagði Þorvaldur.
Er gervigrasið í lagi? Dómararnir mættu snemma til að kíkja á aðstæður í Garðabænum.
Herbalife á línuna: Leikmenn Stjörnunnar drekka drykki frá Herbalife fyrir leiki. Guðni Rúnar Helgason er hér glaður í bragði með sinn drykk.
Mennirnir bakvið tjöldin: Sigurður Þórðarson og Jóhann Steinar Ingimundarson eru liðsstjórar Stjörnunnar og sjá um að allt sé í lagi.
Kristinn fyrstur út á völl: Kristinn aðstoðarþjálfari er mættur fyrstur út á völl til að gera allt klárt fyrir upphitun. ,,Þeir byrja með bolta, eftir það hlaupa þeir sjálfir nokkrar ferðir í ca 10 mínútur, síðan taka þeir hreyfiteygjur áður en við endum á stuttu spili. Þetta eru svona 20-25 mínútur og síðan fá þeir fimm mínútur til að skjóta á markið og sparka á milli áður en við förum inn í klefa," sagði Kristinn um upphitunina.
Haldið á lofti með appelsínu: Leikmennirnir eru ennþá inni í klefa og stytta sér stundir með því að sparka appelsínu á milli sín. Tryggvi Sveinn Bjarnason sýnir lagleg tilþrif með appelsínuna.
Föstu leikatriðin klár: Bjarni fer yfir uppstillingu í föstum leikatriðum með leikmönnum. Stjarnan hefur nýtt föstu leikatriðin vel í sumar og skorað mark eftir föst leikatriði í öllum leikjum hingað til.
Laxdal bræðurnir klárir: Bræðurnir Jóhann og Daníel Laxdal komnir í búninginn og klárir í slaginn.
19 ára aldursmunur: Baldvin Guðmundsson og Bjarni Þórður eru markverðir Stjörnunnar. Baldvin er markmannsþjálfari Bjarna og varamarkvörður en hann verður 45 ára gamall í næsta mánuði. ,,Maður kann að grípa og svona en maður er ekki í forminu," sagði Baldvin.
Upphitun í fullum gangi: Leikmennirnir eru á fullu í upphitun og spila á lítil mörk.
Bjarni í viðtali: Bjarni fer í viðtal á Stöð 2 Sport fyrir leikinn sem er sýndur í beinni útsendingu.
Koma svo, berjast!: Leikmennirnir berja sig saman áður en þeir ganga út á völl.
Stjarnan 1 - 0 ÍBV: Tryggvi Sveinn Bjarnason kom Stjörnunni yfir með skalla
Fagnað fyrir framan stúkuna: Stjörnumenn unnu að lokum 3-0 og þökkuðu stuðningsmönnum sínum fyrir framlagt sitt.
Zyggy-Zaggy Zyggy-Zaggy hey hey hey: Stjörnumenn fagna vel og innilega inni í klefa og Jóhann Laxdal stjórnar ferðinni.
Mix Mix Mix Mix Mix la la la la la la la: Eftir "Zyggy-zaggy" taka Stjörnumenn lag úr Mix-auglýsingu sem er í spilun þessa dagana. ,,Þetta er bara stemning. Ég hef alltaf stjórnað þegar við tökum Zyggy-Zaggy og síðan kom Bjarni markvörður með Mix lagið og það er orðinn hefð að við tökum þetta alltaf eftir sigurleiki. Mixið er flott, þetta er stemningslag," sagði Jóhann.
Liðsmynd: Stjörnumenn voru hressir og stilltu sér upp í liðsmynd.
Prótein súkkulaði: Kristinn kemur færandi hendi með Prótein súkkulaði handa leikmönnum.
Nóg af pizzu: Einnig er boðið upp á pizzur og leikmenn taka vel til matar síns. ,,Samkvæmt kokkabókum næringafræðinga er lykilatriði að úða í sig mat og sérstaklega kolvetnum á fyrsta klukkutímanum eftir leik. Pizzur eru brauð og það er hellingur af kolvetnum í þeim. Ég tók þessa ákvörðun eftir að hafa séð inn í klefa hjá þessum stóru liðum á Bretlandseyjum, þar virðast vera að menn smygli kolvetnum ofan í menn í gegnum fæði eins og hamborgara, pizzur og samlokur. Við erum að vinna í þessum málum því að ég tel að akkilesarhæll margra knattspyrnumanna á Íslandi sé fæðuval og lífsstíll," útskýrir Bjarni þjálfari.
Pepsi í Pepsi-deildinni: Það er vel við hæfi að leikmenn í Pepsi-deildinni fái sér Pepsi með pizzunni.
Suber-sub: Arnar Már Björgvinsson er kominn með fjögur mörk á 80.mínútum í sumar og hann var ánægður með pizzuna.
Kalt! Birgir Hrafn Birgsson fer í ísbað eftir leikinn.
Nóg að borða: Þeir sem eru ennþá svangir geta síðan endað daginn í kaffi og meðlæti í félagsaðstöðu Stjörnunnar.