Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mán 22. júní 2009 10:18
Magnús Már Einarsson
FH mætir félagi frá Kasakstan í Meistaradeildinni
Atli Guðnason og félagar í FH fara til Kazakhstan.
Atli Guðnason og félagar í FH fara til Kazakhstan.
Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson
Nú rétt í þessu var dregið í fyrstu tvær umferðirnar í forkeppni Meistaradeildar Evrópu en Íslandsmeistarar FH munu mæta Aktobe frá Kasakstan.

Fyrri leikurinn fer fram í Hafnarfirði 14 eða 15.júlí en sá síðari verður í Aktobe viku síðar.

Aktobe hefur orðið meistari í Kazakhstan undanfarin tvö ár en liðið hefur aldrei komist áfram úr fyrstu umferðinni í forkeppni Meistaradeildarinnar.

Í fyrra mætti Aktobe liði FC Sheriff Tiraspol frá Moldavíu í fyrstu umferðinni og tapaði samanlagt 4-1.

Í ár eru fjórar umferðir í forkeppni Meistaradeildarinnar en ekki þrjár líkt og áður. FH-ingar koma hins vegar beint inn í aðra umferðina.

Af öðrum leikjum í annarri umferðinni má nefna að Pálmi Rafn Pálmason og félagar í Stabæk mæta Tirana frá Albaníu.
Slapp
banner
banner
banner