Freyr Bjarnason og Hjörtur Logi Valgarðsson, varnarmenn FH, verða frá keppni næstu 2-3 vikurnar vegna meiðslanna sem þeir urðu fyrir gegn Fylki í gærkvöldi. Hjörtur Logi er nýkominn til baka eftir meiðsli en nú er ljóst að hann verður aftur frá í 2-3 vikur.
Tryggvi Guðmundsson og Ásgeir Gunnar Ásgeirsson meiddust einnig í leiknum í gær en þeir ættu að verða klárir í slaginn fyrir leikinn gegn Aktobe í Meistaradeildinni næstkomandi miðvikudag.
,,Hjörtur Logi tognaði í nára og Freyr í læri. Þetta er lítið hjá Tryggva og Ásgeiri og þeir verða klárir í næsta leik," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH við Fótbolta.net í dag.
Félagaskiptaglugginn opnar hér á landi í næstu viku en Heimir er ekki í leit að leikmönnum þrátt fyrir þessi meiðsli.
,,Ég hef enga trú á því nema eitthvað stórkostlegt komi upp á hjá okkur. Ég held að við notum þennan hóp sem við höfum verði að nota. Hann hefur staðið sig vel og það er engin ástæða til að breyta því," sagði Heimir en FH-ingar hafa einnig fengið gleðifréttir því að það styttist í að Dennis Siim verði klár í slaginn.
Dennis meiddist á undirbúningstímabilinu og hefur ekkert spilað í sumar en hann ætti að geta byrjað að æfa á fullum krafti í næstu viku.


