Grétar Rafn Steinsson landsliðsmaður í knattspyrnu og leikmaður Bolton í Englandi hefur sett á stofn styrktarsjóð sem mun starfa að góðgerðarmálum. Sjóðurinn var stofnaður formlega í gær og ber heitið Styrkarsjóður Grétars Rafns Steinssonar. Af því tilefni var börnum sem dvelja í Rjóðrinu (hvíldarheimili langveikra barna) boðið í bíó í gær ásamt sínum nánustu að sjá myndina Ice Age 3 3D.
Grétar Rafn hefur frá því hann gerðist atvinnumaður í knattspyrnu leitast við að láta gott af sér leiða í þágu langveikra barna og þá gjarnan í tengslum við Rjóðrið. Grétar hefur ásamt fjölskyldu sinni og samstarfsfólki til að mynda boðið fjölskyldum barna úr Rjóðrinu á leiki hjá AZ Alkmaar og Bolton Wanderers þrjú síðustu ár. Einnig hefur hann staðið fyrir kaupum á tækjum og stoðvörum fyrir börnin sem dvelja í Rjóðrinu. Grétar er kominn í þá stöðu að geta skipulagt hluti sem teljast einstakir í upplifun og minningu fólks með tengslum sínum í knattspyrnuheiminum, þar hefur hann beitt sér og mun gera um ókomna tíð í þágu góðgerðamála.
Grétar Rafn hefur frá því hann gerðist atvinnumaður í knattspyrnu leitast við að láta gott af sér leiða í þágu langveikra barna og þá gjarnan í tengslum við Rjóðrið. Grétar hefur ásamt fjölskyldu sinni og samstarfsfólki til að mynda boðið fjölskyldum barna úr Rjóðrinu á leiki hjá AZ Alkmaar og Bolton Wanderers þrjú síðustu ár. Einnig hefur hann staðið fyrir kaupum á tækjum og stoðvörum fyrir börnin sem dvelja í Rjóðrinu. Grétar er kominn í þá stöðu að geta skipulagt hluti sem teljast einstakir í upplifun og minningu fólks með tengslum sínum í knattspyrnuheiminum, þar hefur hann beitt sér og mun gera um ókomna tíð í þágu góðgerðamála.
,,Þetta er búið að standa lengi til. Það eru kannski ekki allir sem vita það en Grétar hefur starfað að góðgerðarmálum ásamt fjölskyldu og vinum, þar á meðal mér. Hann hefur einnig verið að gefa mikið til góðgerðarmála. Það allt byrjaði þegar Grétar var að glíma við erfið meiðsli, að þá fór hann að spá í því að þegar hann lá á sjúkrarúmi og var að vorkenna sjálfum sér, hvað hann væri að vorkenna sjálfum sér! Þegar maður horfir á þá sem eiga erfitt, börn og langveik börn. Hann hlyti að geta gert eitthvað til þess að gleðja aðra jafnvel. Það var svona pælingin hjá honum." sagði Þorsteinn Lár Ragnarsson vinur Grétars Rafns og stjórnarmaður í styrktarsjóðnum.
,,Hann byrjaði á því að vera með sumarhátíð í Rjóðrinu. Við byrjuðum semsagt á því að vinnar að því saman að halda sumarhátið fyrir börnin og fjölskyldur þeirra í Rjóðrinu, sem landsþekktir tónlistarmenn og fleiri kæmu og myndu eiga góðan dag saman. Út frá því ákvað hann það að bjóða fjölskyldu barns úr Rjóðrinu á leik hjá AZ Alkmaar þar sem hann spilaði á þeim tíma. Það er núna búið að gerast þrisvar sinnum, tvisvar til AZ Alkmaar og einu sinni síðasta vetur til Bolton. Og þetta er eitthvað sem hann ætlar að halda áfram að gera.
,,Styrktarsjóðnum er semsagt ætlað að halda utanum þessa heild. Ef það er verið að styrkja einhver málefni að þá er það styrktarsjóðurinn sem slíkur sem gerir það. Ætlunin er að vera með ýmsar uppákomur svona framvegis til þess að afla fjár í sjóðinn og sjóðnum er síðan ætlað að styrkja við góðgerðarmál. Og Rjóðið er kannski svona fókus hjá okkur. Og í dag langaði okkur bara til þess að gera góðan dag fyrir krakkana. Það er ekkert alltaf sem þau fara í bíó. Og Erla og þau hjá Laugarásbíó voru það góð að, að það var ekkert mál að gefa okkur eina sýningu. Grétar Rafn gaf sér tíma á milli leikja hjá landsliðinu til að mæta hér í dag og heilsa uppá vini sína í Rjóðrinu."
En afhverju Rjóðið?
,,Þegar Grétar heyrði af Rjóðrinu að þá hálf skammaðist hann sín fyrir að vita ekki hvað Rjóðrið væri en núna veit hann vel hvað það er og það er unnið mjög gott starf þarna. Þarna eru börn sem eru með mjög sjaldgæfa sjúkdóma og þetta eru mjög sérstök börn. Honum langaði til þess að styrkja sérstök börn og gera skemmtilega hluti með þessum börnum því að það þarf svo lítið til að gleðja þau. Krakkar í dag sem eru heilbrigðir taka kannski lífinu og hlutunum sem þau fá sem sjálfsögðum hlut en þessi börn vita það að það er ekkert allt sjálfsagt. Hvað þá að fæðast heill heilsu."
Hverjir sitja í stjórn sjóðsins?
,,Það eru Grétar Rafn Steinsson, Manúela Ósk, Ég (Þorsteinn Lár Ragnarsson) og Guðjón Guðmundsson sölu og markaðsstjóri Vífilfells. Guðjón hefur gríðarlega góð tengsl og sér um að við fáum drykki í tengslum við sumarhátíðina t.d. og komið okkur í samband við Sláturfélag Suðurlands sem hafa gefið okkur pulsur og hann hefur verið einnig að aðstoða okkur með flug, að reyna að fá það frítt og svona."
,,Það er alveg klárt mál að þessu verður haldið áfram um ókomna tíð og síðan einhvern daginn á Grétar ekki eftir að vera atvinnuknattspyrnumaður og hvað gerir hann þá? Jú hann örugglega eftir að halda áfram að virkja sjóðinn sinn og gera glaðan dag fyrir fólk og kaupa græjur sem vantar eins og fyrir Rjóðrið. Hann hélt t.d. upp á afmælið sitt í eitt skiptið og afþakkaði gjafir, sagði að það yrði bara baukur sem fólk gæti látið í og það færi allt í styrktarmálefni. Þar söfnuðust um 100.þús krónur og hann síðan tvöfaldaði þá upphæð og keypti hljómflutningsgræjur og stoðvörur handa Rjóðrinu.
,,Það er það sem sjóðurinn mun m.a gera, að kaupa þá hluti sem félögum eins og Rjóðrinu vantar. Við munum reyna að koma því í kring."
Hægt er að styrkja starfsemi rjóðsins með því að leggja inn á reikning félagsins.
Bankareikningur: 0162-15-382947
Kennitala: 670109-1190
Athugasemdir