Rashford verður ekki hjá Barcelona á næsta tímabili - Man Utd kemur mikið við sögu í slúðurpakka dagsins
   mið 09. september 2009 14:26
Magnús Már Einarsson
Njáll Eiðsson hættir sem þjálfari Hattar eftir tímabilið
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Njáll Eiðsson mun hætta sem þjálfari hjá 2.deildarliði Hattar eftir þetta tímabil.

Njáll hefur stýrt Hetti undanfarin þrjú ár eftir að hafa áður þjálfað meðal annars Val og ÍBV.

,,Ég ætlaði fyrst að vera í eitt ár en síðan líkaði mér vel og hef núna verið í þrjú ár," sagði Njáll við Fótbolta.net í dag.

,,Þetta er svolítið snúið. Ég er kennari í Reykjavík, þetta er breyting á fjölskylduhögum og ég er töluvert mikið í burtu frá fjölskyldunni."

,,Þetta eru búin að vera þrjú skemmtileg ár og einhverntímann endar það. Ég held að það sé kominn tími á að einhver annar taki við," sagði Njáll sem að er opinn fyrir því að halda áfram í þjálfun.

Höttur á tvo leiki eftir í annarri deildinni í sumar en liðið mætir Njarðvík á útivelli á laugardag og 19.september tekur liðið á móti BÍ/Bolungarvík.

Af öðrum fréttum frá Egilsstöðum má nefna að Oliver Bjarki Ingvarsson mun einnig hætta sem þjálfari hjá kvennaliði Hattar.
Slapp
banner
banner